Gerð og yfirferð
Við skoðum markmið aðila, réttindi, skyldur og áhættu og aðstoðum við að móta samningsákvæði sem falla að verkefninu. Ráðgjöfin tekur bæði til persónulegra réttarsambanda og viðskiptasamninga.
Efndir og ágreiningur
Við veitum ráðgjöf þegar ágreiningur verður um túlkun eða framkvæmd samnings. Við förum yfir samningsgögn og samskipti og metum möguleika á samkomulagi eða frekari hagsmunagæslu.
Gögn fyrir fyrstu yfirferð
Sendu stutta lýsingu á samningnum og því sem þarf að leysa. Við afmörkum síðan yfirferðina, hvaða gögn þarf og fyrirkomulag verkefnisins.
Algengar spurningar um þjónustuna
Getið þið yfirfarið samning áður en ég undirrita?
Já. Við aðstoðum við yfirferð samningsdraga og mat á skuldbindingum og áhættu.
Sinnið þið samningum fyrir einstaklinga og fyrirtæki?
Já. Stofan sinnir samningagerð og samningstengdri ráðgjöf fyrir báða hópa.
Þessi síða lýsir þjónustu stofunnar. Mat á einstöku máli byggist á aðstæðum og gögnum þess.
