Steinunn Hólm Guðbjartsdóttir er eigandi og hæstaréttarlögmaður hjá Borgarlögmönnum – Holm & Partners og hefur starfað við lögfræði frá því snemma á tíunda áratugnum. Hún hefur víðtæka og djúpa reynslu af lögmannsstörfum, þar á meðal í flóknum málum þar sem lagaleg ábyrgð, yfirvegun og nákvæmni skipta sköpum.
Á árunum 2008–2016 gegndi Steinunn lykilhlutverkum í tengslum við Glitni banka, meðal annars sem formaður slitastjórnar, og sinnti jafnframt verkefnum á vettvangi greiðslustöðvunar og skilanefndar. Í þessum störfum fólst meðal annars yfirstjórn lagalegrar meðferðar, ákvarðanataka um meðferð krafna og samskipti við innlenda og erlenda hagsmunaaðila í fjölmörgum lögsagnarumdæmum.
Samhliða þessum verkefnum hefur Steinunn um áratuga skeið sinnt ráðgjöf til einstaklinga og fjölskyldna í flóknum réttarsamböndum, þar á meðal við fjárslit hjóna, skipti dánarbúa og gerð erfðaskráa og kaupmála. Hún hefur einnig víðtæka reynslu af skiptastjórn, kennslu og fræðslu á sviði skiptaréttar, erfða og fjármála hjóna.
Fræðsla og útgáfur
Steinunn Hólm Guðbjartsdóttir hefur um árabil sinnt kennslu og fræðslu á sviði lögfræði, bæði innanlands og erlendis. Hún hefur kennt á námskeiðum Lögmannafélags Íslands til öflunar málflutningsréttinda og verið stundakennari við Háskólann í Reykjavík. Þá hefur hún flutt fyrirlestra á alþjóðlegum ráðstefnum um gjaldþrotaskipti og endurskipulagningu fyrirtækja og birt greinar í erlendum fagtímaritum, meðal annars á vettvangi INSOL Europe.
Hún er jafnframt höfundur greinarinnar „Óvígð sambúð“ í Heiðursriti – Ármann Snævarr 1919–2010, sem gefið var út af Rannsóknastofnun Ármanns Snævarr um fjölskyldumálefni við Háskóla Íslands og Bókaútgáfunni Codex.
Valdar greinar:
- Óvígð sambúð
- Developments Around Insolvency and Restructuring in Iceland
- The Failure of the Icelandic Banks
Tengiliður
Netfang: steinunn@borgarlogmenn.is
Sími: 863 7940
