Persónuverndarstefna Borgarlögmanna

Gildistaka og útgáfa

Gildistaka: 1. febrúar 2026

Útgáfa: 2.1

Persónuverndarstefna þessi er sett í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/679 (GDPR).

1. Um stefnuna

Stefnan tekur til allrar vinnslu persónuupplýsinga sem fram fer hjá Borgarlögmönnum sf., kt. 610111-1810 (hér eftir „Borgarlögmenn“).

2. Ábyrgðaraðili og samskipti

Borgarlögmenn eru ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga.

Netfang: borgarlogmenn@borgarlogmenn.is
Tengiliður persónuverndar: Páll Eiríksson, pall@borgarlogmenn.is
Sími: 520 4100

3. Hvaða persónuupplýsingar vinnum við?

Borgarlögmenn vinna eingöngu þær persónuupplýsingar sem nauðsynlegar eru til að veita lögfræðiþjónustu og uppfylla lagaskyldur.

• Almennar auðkennis- og samskiptaupplýsingar
• Gögn og upplýsingar sem verða til í málum
• Reiknings- og bókhaldsgögn
• Sérstakar tegundir persónuupplýsinga þegar slíkt er nauðsynlegt
• Upplýsingar vegna skyldna samkvæmt peningaþvættislögum

4. Uppruni upplýsinga

Að meginstefnu til afla Borgarlögmenn persónuupplýsinga beint frá viðskiptamanni eða tengilið hans. Upplýsingar kunna einnig að koma frá stjórnvöldum, dómstólum, gagnaðilum, sérfræðingum eða opinberum skrám.

5. Tilgangur vinnslu og lagagrundvöllur

Persónuupplýsingar eru unnar til að veita lögfræðiþjónustu, uppfylla lagaskyldur, reka starfsemina og greina notkun heimasíðu, eingöngu með samþykki notanda.

6. Vefkökur og mælingar

Heimasíðan notar nauðsynlegar vefkökur. Greiningar- og markaðsvefkökur eru aðeins notaðar með skýru samþykki notanda og hægt er að afturkalla samþykki hvenær sem er.

7. Miðlun og aðgangur

Aðgang hafa einungis þeir starfsmenn sem þurfa slíkan aðgang. Upplýsingum kann að vera miðlað til dómstóla, stjórnvalda, sérfræðinga og vinnsluaðila.

8. Flutningur utan EES

Flutningur persónuupplýsinga utan EES fer aðeins fram með viðeigandi verndarráðstöfunum.

9. Varðveislutími

Gögn í málum eru að jafnaði varðveitt í allt að 5 ár frá lokun máls. Bókhaldsgögn eru varðveitt í samræmi við lög.

10. Öryggi

Við beitum viðeigandi tæknilegum og skipulagslegum öryggisráðstöfunum.

11. Réttindi einstaklinga

Einstaklingar eiga rétt samkvæmt persónuverndarlöggjöf, m.a. til aðgangs, leiðréttingar, eyðingar við ákveðnar aðstæður og andmæla vinnslu.

12. Kvartanir

Kvartanir má beina til Persónuverndar, postur@personuvernd.is, Rauðarárstígur 10, 105 Reykjavík.

13. Breytingar

Borgarlögmenn áskilja sér rétt til að uppfæra persónuverndarstefnu þessa eftir þörfum.